Um síðustu helgi voru í kringum 40 sjálfboðaliðar að gera Ólafsvíkurvöll kláran fyrir fyrsta leikinn tímabilsins í Pepsi-deildinni þegar liðið Víkingur tekur á móti Fram.
Þriðja bilið í stúkunni var klárað með uppsetningu sætanna og nú tekur stúkan um 500 manns í sæti og blaðamannastúkan er klár.
Einnig voru skiltin hengd upp og sár í brekkunni við kirkjuna þar sem grafa tók úr hólnum til að áhorfendur sæju betur inní hornið, var tyrfð.
Margt annað var gert og er Ólafsvíkurvöllur tilbúinn til leiks í Pepsídeildinni og beina útsendingu á Stöð2Sport frá leiknum.
Hér hægra megin við textann er mynd Sigrúnar Ólafsdóttur af stúkunni eftir að framkvæmdum lauk.
Athugasemdir