Íþróttir

Blaðauki um Keflavíkurknattspyrnuna með Víkurfréttum á morgun
Þriðjudagur 18. maí 2004 kl. 18:49

Blaðauki um Keflavíkurknattspyrnuna með Víkurfréttum á morgun

Á fimmtudag verður fyrsti heimaleikur Keflavíkur í Landsbankadeildinni á móti Íslandsmeisturum KR. Liðið fékk flúgandi start með sigri á KA í fyrstu umferð síðastliðinn sunnudag og hvetja Keflvíkingar alla Reyknesinga til að fjölmenna á völlinn og hvetja sína menn.
Fyrstu Íslandsmeistarar Keflavíkur verða heiðraðir í uppphafi leiks en á þessu ári eru liðin 40 ár frá því að þeir lönduðu fyrsta titlinum. Börnum verður boðið upp á andlitsmálun í Sundlaugarkjallara frá kl. 17.30 og Keli Keflvíkingur mætir á völlin og gefur öllum nammi. K-Klúbbsmeðlimir og stuðningsmenn liðsins ætla að mæta á Ránna á miðvikudag kl. 20.00 þar sem formaður Keflavíkur, Rúnar Arnarson, og þjálfari liðsins, Milan Stefán Jankovic, gera grein fyrir undirbúningi liðsins og sumrinu framundan. Þeir sem kjósa geta þar gengið í K-Klúbbinn, en aðild að honum fylgja ýmis fríðindi eins og til dæmis veitingar fyrir leiki og í hálfleik.
Víkurfréttum á morgun fylgir átta síðna blaðauki þar sem rifjaðir eru upp gamlir og góðir tímar í bland við nýjar fréttir af knattspyrnunni í Keflavík. Blaðaukinn er í boði Landsbanka Íslands.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024