Íþróttir

Keflavíkurvöllur í sérflokki
Miðvikudagur 15. maí 2013 kl. 11:15

Keflavíkurvöllur í sérflokki

 

Við hefðbundna úttekt eftirlitsaðila frá KSÍ á aðstæðum fékk knattspyrnuvöllurinn í Keflavík umsögnina framúrskarandi. Þessi einkunn er mikið ánægjuefni fyrir Nettóvöllinn og er tilkominn vegna margra samvirkandi þátta. Má þar nefna hitalögnina undir vellinum, nýtt vatnsúðunarkerfi og einnig hvernig hann var uppbyggður við endurnýjun hans fyrir 3 árum. Síðast en ekki síst má þakka þessa góðu umsögn góðu starfi vallarstjórans, Sævars Leifssonar, sem fær góða ráðgjöf frá fyrirtækinu Lauftækni ehf varðandi m.a. umhirðu og áburðargjöf á völlinn.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024