Íslenski boltinn

Framtíðin liggur í gervigrasvöllum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Akureyrarvöllur eins og hann leit út fyrir fáeinum dögum. Hér verður ekki spilað í bráð.myndsteindór ragnarsson
Akureyrarvöllur eins og hann leit út fyrir fáeinum dögum. Hér verður ekki spilað í bráð.myndsteindór ragnarsson

Einhver bið verður á því að hægt verði að spila knattspyrnuleiki á náttúrulegu grasi á Norðurlandi þetta vorið. Vellirnir koma allir illa undan vetri eftir mikil snjóþyngsli og afar erfiða tíð í vetur.

„Snjórinn kom í október og fór ekki fyrr en í maí,“ sagði Eðvarð Eðvarðsson, vallarstjóri Akureyrarvallar, við Fréttablaðið í gær. „Í febrúar lá 25 cm klaki yfir vellinum sem við skófum í burt með veghefli og hjólaskóflu. Völlurinn skemmdist aðeins við það, þar sem tönnin fór aðeins of neðarlega. En það var ekki annað hægt til að komast undir klakann,“ sagði Eðvarð.

Spilað á Ólafsfirði á morgun

Saga hans er dæmigerð fyrir Norðurlandið en Fréttablaðið hefur síðustu daga talað við fulltrúa flestra knattspyrnufélaga þar. Eini grasvöllurinn sem hefur verið notaður fyrir norðan er Þórsvöllur. Karlalið Þórs og kvennalið Þórs/KA hafa spilað á honum í Pepsi-deildunum, þrátt fyrir að hann líti talsvert verr út en aðrir vellir í efstu deildum karla og kvenna.

KA, Tindastóll, KF, Dalvík/Reynir, Magni og Kormákur/Hvöt hafa öll spilað í Boganum í vetur og flest þeirra gera það áfram næstu vikurnar. KF ætlar reyndar að freista þess að spila á Ólafsfjarðarvelli gegn KA í 1. deildinni á morgun og þá er stutt í að Hvammstangavöllur verði tilbúinn fyrir leiki Kormáks/Hvatar í 4. deildinni.

Völsungur hefur spilað sína leiki á gervigrasvellinum á Húsavík, enda enn langt í að aðalvöllurinn verði nothæfur.

Mannvirkin illa nýtt

Gunnar Níelsson, formaður KA, segir það mikla synd hversu illa íþróttamannvirkin á Norðurlandi eru nýtt.

„Það kostar heilmikið að byggja upp fótboltavöll með stúku og svo er bara hægt að nota hann í 20 vikur á ári. Það er einfaldlega glatað,“ segir Gunnar við Fréttablaðið. Hann bendir á að KA hafi spilað gegn Völsungi á nýjum upphituðum gervigrasvelli á Húsavík í mars.

„Það var sex stiga frost og stafalogn. Það var algjörlega frábært. Með þessu væri hægt að lengja tímabilið og nýta mannvirkin í kringum vellina svo miklu betur. Þetta er framtíðin og því fyrr sem menn viðurkenna það því betra.“

Gunnar segir umræðuna um gervigrasvelli byggða á gömlum rökum.

„Hér áður fyrr var bent á gamla gervigrasið í Laugardalnum og hversu slæmt það var. En þróunin hefur verið slík síðustu ár að í dag eru gervigrasvellir jafnvel taldir betri en náttúrulegt gras. Veturinn var erfiður hér í vetur en hvað ef sá næsti verður erfiður fyrir sunnan? Nú er til að mynda risið glæsilegt mannvirki í kringum Kaplakrikavöll. Hvað þætti mönnum ef það væri ekki hægt að nota þann völl fyrr en í byrjun júlí?“

Gervigras víða um Evrópu Gunnar segir að lausnin sé augljós.

„Framtíðin liggur í gervigrasvöllum. Ef það er spilað á gervigrasi í löndum eins og Noregi og Skotlandi – og meira að segja í Meistaradeildinni í Moskvu – þá er það hægt á Íslandi líka.“

Staðan á völlunum

Dalvík/Reynir - Dalvíkurvöllur

Vonast til að spila á vellinum 8. júní

KA - Akureyrarvöllur

Ekki tilbúinn, þarf fjórar góðar vikur til viðbótar.

KF - Ólafsfjörður/Siglufjörður

Áætlað að spila á Ólafsfirði á morgun, þrátt fyrir mikinn snjó í kringum völlinn. Siglufjarðarvöllur enn undir snjó, ekki tilbúinn fyrr en seint í júní.

Kormákur/Hvöt - Hvammstangavöllur

Ætti að vera tilbúinn í næstu viku, sem og völlurinn á Blönduósi.

Magni - Grenivíkurvöllur

Tilbúinn um miðjan júní, í fyrsta lagi.

Tindastóll - Sauðárkróksvöllur

Stórskemmdur, tilbúinn seint í júní í fyrsta lagi. Lítur hvað verst út á Norðurlandi.

Völsungur - Húsavíkurvöllur

Staðan slæm og líklega ekki tilbúinn fyrr en í júlí.

Þór og Þór/KA - Þórsvöllur

Hefur verið notaður í upphafi móts í Pepsi-deildunum.


Tengdar fréttir

Völlurinn er handónýtur

Knattspyrnuvellir á Norðurlandi koma illa undan vetri og liggja margir undir kalskemmdum, eins og sést greinilega á meðfylgjandi myndum sem Jóhann G. Kristinsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, tók á ferð sinni um Norðurland um liðna helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×