Innlent

Lést í flugvél á Keflavíkurvelli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Keflavíkurvöllur.
Keflavíkurvöllur. visir/valli
Flugvél frá Air Canada lenti með farþega,  sem hafði veikst hastarlega um borð,  á Keflavíkurflugvelli síðastliðinn laugardag.

Vélin var í flugi frá París til Toronto í Kanada þegar kanadískur karlmaður á sextugsaldri fann fyrir miklum  brjóstverkjum.

Lögreglu á Suðurnesjum og sjúkraliði var gert viðvart og þegar um borð í vélina var komið var endurlífgun í gangi.

Hún bar ekki árangur og úrskurðaði læknir lát mannsins í sjúkrabifreið á leið til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×