11 dagar í mót og Akureyrarvöllur farinn ađ skarta sínu besta (samanburđur)

Almennt
Nú eru 11 dagar þangað til flautað verður til leiks í 1.deild karla þegar okkar menn mæta ÍR á ÍR-velli. Fyrsti heimaleikurinn verður föstudaginn 25. maí og stefnir allt í að leikurinn fari fram á Akureyrarvelli, í fyrsta sinn í fjöldamörg ár sem fyrsti heimaleikur færi þar fram.


Hér að neðan er hægt að sjá samanburðarmyndir af vellinum frá 1.maí í fyrra og fyrir mánuði síðan. Munurinn er stjarnfræðilegur enda var veturinn í vetur talsvert betri fyrir grasið en sá síðasti og grasið kemur eins og nýtt undan vetri.





Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband