Akureyrarvöllur verður Greifavöllurinn

Fótbolti

Knattspyrnudeild KA og Greifinn Veitingahús hafa komist að samkomulagi um að hér eftir mun heimavöllur KA í Pepsi-deild karla bera nafnið Greifavöllurinn. Fyrsti leikur KA á vellinum með hinu nýja nafni er einmitt í dag þegar liðið tekur á móti Breiðablik klukkan 16:00.

Greifinn og KA hafa lengi unnið náið saman og er framlag Greifans ómetanlegt fyrir starf knattspyrnudeildar. Það er því KA mikið gleðiefni að heimavöllurinn muni bera nafn þessa sterka bakhjarls félagsins, sem er einmitt staðsettur hinum megin við Glerárgötuna, til móts við Akureyrarvöll.

Samningur KA og Greifans er til tveggja ára og viljum við minna á það að með því að KA-menn beini viðskiptum sínum til bakhjarla félagsins er það óbeint að styrkja KA.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband